Fréttir

ART – réttindanámskeið fyrir leikskóla

Haldið verður ART – réttindanámskeið fyrir leikskóla dagana 5 – 7  október 2010 09:00 – 16:00 alla dagana. Skráning fer fram á simenntun@skolasud.is.

Enn er ekki alveg á hreinu með staðsetningu fyrir námskeiðið en fylgist með heimasíðunni því það verður sett þar inn .

Nýtt aðgangsorð inn á ART efni

Nú er komið haust og tími á smá breytingar. Vonum að allir hafi haft það gott í sumar og séu tilbúnir í ævintýri veturins.
Það er komið nýtt aðgangsorð fyrir ykkur sem hafið verið á ART námskeiði hjá teyminu. Vinsamlegast sendið tölvupóst til okkar til að fá  nýja aðgangsorðið. 🙂

KV.
Teymið

ART námskeið 11.-13. ágúst 2010 og bíódagur á haustönn

Lengd: 13 vikur.
Námskeiðið byrjar á þremur dögum þar sem kennd er hugmyndafræði og þátttakendur fá verklega þjálfun til að geta kennt börnum og unglingum félagsfærni, sjálfsstjórnun og siðferði.  Þátttakendur byrja síðan með hópa í þjálfun í framhaldi af námskeiðinu og fá handleiðslu þær 12 vikur sem þjálfun stendur yfir.
Kennarar: Bjarni Bjarnason og Sigríður Þorsteinsdóttir ART þjálfarar
(Lágmarksfjöldi: 16 manns)
Þátttaka tilkynnist á netfang alda@sudurland.is
Námskeiðið verður haldið í Grunnskóla Hveragerðis.

Scroll to Top