Umsóknarfrestur fyrir fjölskyldu ART

Síðasti skiladagur umsókna fyrir fjölskyldu-ART á vorönn 2022 er miðvikudagurinn 1. desember til kl 16:00. 

Umsóknir skulu sendar á ART teymið Austurvegi 56, 800 Selfoss. Umsóknareyðublaðið má finna hér á heimasíðunni og gátlistar sem þurfa að fylgja með eru einnig á heimasíðunni. 

Fjölskyldu-ARTið er afar hentugt fyrir börn sem til dæmis standa illa félagslega, eiga í erfiðleikum með samskipti við aðra, hafa lágt sjálfsmat, veika sjálfsmynd, eiga erfitt með sjálfstjórn, kunna ekki að setja sér mörk, eru kvíðin eða eru slök í siðferðishugsun.

Hafið samband við ART teymið fyrir frekari upplýsingar.

 

Scroll to Top