Fundargerðir
Fundargerð 15. fundar Inntökuráðs ART teymis
haldinn að Austurvegi 3, Selfossi 12. desember 2011 kl. 14:00.
Mættir: Bjarni Bjarnason verkefnisstjóri, Eygló Aradóttir barnalæknir og Kristín Hreinsdóttir formaður stjórnar sem einnig ritaði fundargerð.
Einnig komu á fundinn sálfræðingar Skólaskrifstofu Suðurlands: Alda Sigrún Magnúsdóttir, Snorri Rafn Sigmarsson og Ragnar S Ragnarsson til að fylgja eftir málum skjólstæðinga sinna. Fundargerð var rituð í trúnaðarmálabók.
Formaður setti fund og stjórnaði honum.
1. Mál til afgreiðslu.
Teknar voru fyrir 27 umsóknir.
Tuttugu og ein umsókn var samþykkt. Þremur umsóknum var frestað þar til frekari greiningar á stöðu viðkomandi nemenda liggja fyrir. Þremur umsóknum var hafnað.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:25.
Kristín Hreinsdóttir
Bjarni Bjarnason
Eygló Aradóttir
Fundargerð 14. fundar Inntökuráðs ART teymis
haldinn að Austurvegi 3, Selfossi 17. maí 2011 kl. 13:15.
Mættir: Bjarni Bjarnason verkefnisstjóri, Eygló Aradóttir barnalæknir og Kristín Hreinsdóttir formaður stjórnar sem einnig ritaði fundargerð.
Einnig komu á fundinn sálfræðingar Skólaskrifstofu Suðurlands: Alda Sigrún Magnúsdóttir og Snorri Rafn Sigmarsson til að fylgja eftir málum skjólstæðinga sinna. Fundargerð var rituð í trúnaðarmálabók.
Formaður setti fund og stjórnaði honum.
1. Formaður fór yfir stöðu verkefnisins. Rekstur verkefnisins árið 2011 er tryggður með framlögum frá barnaverndarnefndum á Suðurlandi með framlögum frá Barnaverndarstofu, með framlögum frá ríkinu og framlagi sveitarfélaga sem samþykkt voru á aðalfundi SASS í september 2010. Rekstargrundvöllur ársins 2012 hefur ekki verið tryggður.
Inga Margrét Skúladóttir hætti störfum hjá teyminu í ársbyrjun og ekki hefur verið ráðið í hennar stað, m.a. vegna óvissu um framhald verkefnisins.
2. Verkefnisstjóri fór yfir starf vetrarins.
3. Mál til afgreiðslu.
Teknar voru fyrir 38 umsóknir frá 5 sveitarfélögum.
23 umsóknir voru samþykktar, 5 umsóknum var frestað, 3 umsóknum var vísað á heilsugæslu til nánari athugunar og 7 umsóknum var hafnað.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
Kristín Hreinsdóttir
Bjarni Bjarnason
Eygló Aradóttir