
Umsókarfrestur fyrir fjölskyldu ART
Síðasti skiladagur umsókna fyrir fjölskyldu-ART á vorönn 2021 er miðvikudagurinn 2. desember til 16:00. Umsóknir skulu sendar á ART teymið Austurvegi 56, 800 Selfoss. Umsóknareyðublaðið má finna hér á heimasíðunni og gátlistar sem þurfa að fylgja með eru einnig á heimasíðunni.
Fjölskyldu-ARTið er afar hentugt fyrir börn sem til dæmis standa illa félagslega, eiga í erfiðleikum með samskipti við aðra, hafa lágt sjálfsmat, veika sjálfsmynd, eiga erfitt með sjálfstjórn, kunna ekki að setja sér mörk, eru kvíðin eða eru slök í siðferðishugsun.
Hafið samband við ART teymið fyrir frekari upplýsingar.
Næstu ART-réttindanámskeið
Næstu ART-réttindanámskeið verða haldin í haust. Eitt námskeið hefur verið sett á Selfossi dagana 11 – 13 ágúst og annað á Austfjörðum dagana 17- 19 ágúst.
Opið er fyrir skráningar á netfanginu sigridur@isart.is