Hvað er upprifjunarnámskeið og fyrir hverja?
Upprifjunarnámskeið ART er ætlað þeim sem hafa lokið ART réttindanámskeiði (skiptir ekki máli hvenær) og vilja rifja upp kennsluaðferðirnar, fá aukið öryggi og koma sér aftur af stað í ART þjálfun.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
- félagsfærni
- sjálfsstjórn
- siðferði
- nýtt og endurbætt efni
- uppbyggingu og framkvæmd ART tíma
Námskeiðið hentar sérstaklega vel fyrir þá sem hafa ekki unnið með ART í einhvern tíma og vilja eflast í hlutverki ART þjálfara.
9:00–16:00

