Haustönnin hjá ART teyminu fer skemmtilega af stað

Það hefur verið nóg um að vera hjá ART-teyminu síðustu vikur og haustið fer sannarlega skemmtilega af stað!

Við höfum haldið tvö ART-réttindanámskeið, eitt á Selfossi og annað á Akureyri. Það er virkilega ánægjulegt að sjá áhugann á ART og gaman að fylgjast með nýjum ART-þjálfurum bætast í hópinn víða um land.

Við fengum svo tækifæri til að deila reynslu af ART með starfsfólki skóla á Fræðsludegi Árborgar þann 20. ágúst. Þar hélt ART-teymið vinnustofu fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla þar sem Selma Harðardóttir fjallaði um ART út frá eigin reynslu. Hún sagði frá því hvernig hún hefur nýtt ART í kennslu, hvernig hægt er að flétta ART inn í daglegt skólastarf og hvaða áhrif það hefur haft á nemendahópinn og hana sjálfa sem kennara.

Það er  ánægjulegt að fá tækifæri til að deila reynslu og hugmyndum um hvernig ART getur orðið hluti af daglegu starfi og sjá áhugann á því að nýta ART víðar.

Við hlökkum til áframhaldsins og allra þeirra spennandi verkefna sem fram undan eru í haust!

 

 

Nýjung hjá ART teymi Suðurlands – Upprifjunarnámskeið

Hvað er upprifjunarnámskeið og fyrir hverja? 

Upprifjunarnámskeið ART er ætlað þeim sem hafa lokið ART réttindanámskeiði (skiptir ekki máli hvenær) og vilja rifja upp kennsluaðferðirnar, fá aukið öryggi og koma sér aftur af stað í ART þjálfun.
 
 
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
  • félagsfærni
  • sjálfsstjórn
  • siðferði
  • nýtt og endurbætt efni
  • uppbyggingu og framkvæmd ART tíma
Námskeiðið hentar sérstaklega vel fyrir þá sem hafa ekki unnið með ART í einhvern tíma og vilja eflast í hlutverki ART þjálfara.
 
📍 Selfoss
📅 17. ágúst 2026

🕘 9:00–16:00

 

Nýr ráðgjafi

Hildur Bjargmundsdóttir hefur verið ráðin til starfa í ART-teymi Suðurlands og mun hún hefja störf þann 1. ágúst næstkomandi. 

Hildur býr yfir mikilli menntun og reynslu á sviði kennslu og skólamála. Hún er með B.Sc. gráðu í landafræði og kennsluréttindi fyrir bæði grunn- og framhaldsskóla. Þá er hún með M.T. gráðu í menntun án aðgreiningar. Frá árinu 2004 hefur Hildur starfað við kennslu í grunnskólum og því vel kunnug þeim áskorunum og tækifærum sem fylgja skólastarfi. Hún hefur undanfarin ár gegnt starfi deildarstjóra sérkennslu við Stekkjaskóla á Selfossi og verið hluti af stjórnendateymi skólans frá því hann var opnaður.

Við bjóðum Hildi hjartanlega velkomna til starfa í ART-teymi Suðurlands.

Scroll to Top