Þriðjudaginn 19. maí hélt ART teymið á Suðurlandi kynningu á ART þjálfun. Kynningin fór fram í sal Hagaskóla og var mæting góð eða um 80 manns úr Hagaskóla, Vesturbæjarskóla, Melaskóla og Grandaskóla. Kynning þessi var skipulögð í framhaldi af heimsókn skólastjórnenda fyrrnefndra skóla til ART teymisins í apríl síðastliðnum. Þátttakendur voru áhugasamir og skemmtileg stemning skapaðist á kynningunni.