Kæra ART áhugafólk

Fleiri gleðifréttir frá ART teyminu á Suðurlandi.  Þann 26. nóvember síðastliðinn var fyrsti grunnskólinn utan Suðurlands ART vottaður en það var Grunnskólinn á Þórshöfn. Mikið og gott ART starf hefur farið þar fram síðasta skólaárið og hafa allir starfsmenn skólans fengið ART námskeið. Skólinn er nú með ART í föstum tímum í stundatöflu og fjallað er um ART í skólanámskrá skólans. Þannig er tryggt að nemendur á yngsta- , mið- og elsta stigi skólans fái ART þjálfun þar sem áhersla er lögð á að bæta félagsfærni, sjálfsstjórn og siðferði nemenda út frá Aðalnámskrá grunnskóla.
Við óskum starfsfólki og nemendum Grunnskólans á Þórshöfn innilega til hamingju með ART vottunina.

afhendinghópur afhending2 afhending1

Nýtt efni undir „annað efni“

ART þjálfar.

Endilega kíkið undir annað efni, þar er komið plagg sem að má auðvelda fyrir ykkur þegar þið eruð í skýrslugerð og myndbandsgerð 🙂

Einnig er útfærsla á  nokkrum færniþáttum hvernig þeir geta litið út á vegg hjá ykkur undir félagsfærni.

ART réttindanámskeið vorönn 2015

5. – 7. janúar haldið í Hraunvallaskóla (Fullt)

27. – 29. janúar haldið á Selfossi (Fullt)

3. – 5. febrúar haldið á Selfossi (nokkur pláss laus)

Scroll to Top